Amanda da Silva Cortes

Ég er fædd í Brasilíu, nánar tiltekið Porto Alegre og er 18ára stúlkukind. Ég stunda nám við menntaskólann Hraðbraut og útskrifast í sumar. Ég hlusta á rokk og metal, og að sjálsögðu fagra rödd Ísabellu( pugginn minn). 

 Áhugamál mín eru ýmisskonar stelpulegir hlutir sem engum finnst gaman að lesa um, dýr (á Stóra dana, Pug, 7 ketti, 2 ástargauka og fiska), mótorhjól, húðflúr og götun, bækur Paulo Coelho, skemmtilegar rökræður þar sem ég vinn(because I said so!).

Þannig séð spái ég ekki mikið í stjórnmálum en er hinsvegar fylgjandi húmanisma og læt mig mikið varða um þróunarlöndin og þeirra vandamál.

 Ég er grænmetisæta og styð ekki veggskreytingar með dýrum, uppstoppanir og pelsanotkun. Dýr skipta mig svakalega miklu máli og réttir þeirra. Mér líður illa yfir því að borða dýr, nota hárin þeirra eða feld sem klæðnað eða einfaldlega nota eitthvað sem kemur frá dýrum þar sem mikið af því er fengið með miður góðum aðferðum. 

  

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Amanda da Silva Cortes

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband